Að fara út í ísbúð og kaupa ís fyrir 5 manna fjölskyldu kostar rúmlega 3000 kr. Ein bíóferð fyrir 5 manna fjölskyldu kostar með poppi og kók ca. 6000 kr.
Að sjá Sveppa í leikhúsi kostar fyrir 5 manna fjölskyldu 14.000 kr, bara miðaverðið...
Ég er svo heppin að eiga 5 ára einhverfan strák... sem er með þráhyggju fyrir Sveppa. Hann uppverðasta allur upp drengurinn þegar Sveppi er í sjónvarpinu og ég er ekki frá því að Sveppi eigi mikið til í málþroska drengsins og félagsfærni hans. Eftir að hann Siggi Tumi fór að horfa á Sveppa diskana þá fóru að koma langar setningar frá honum, eins og "Stattu hérna vinsta megin við mig"... tók svo seinna eftir að þetta var setning af diskinum.
Hann Sigga Tuma dreymir um að komast suður og sjá Sveppa í leikhúsinu.
Ég fór svo að reikna út hvað það myndi kosta fyrir mig að fara með krakkana suður í helgarferð, þar sem frumburðurinn minn verður 16 ára í mars.  Væri gaman að skella sér keyrandi suður, fara í leikhús og sjá Sveppa, kannski ein ferð á veitingastað í pizzu, kaupa ís fyrir liðið en þegar talan var komin í 50.000 kall og ekki var búið að reikna með neinni Smáralindaferð fyrir 16 ára dótturina, né ferð í Húsdýragarðinn  og ekki heimferðinni þá bara hætti ég að reikna !!!
Hvað er svona fréttnæmt við þessar fréttir.. ef ég vissi ekki betur þá væri mín fyrsta hugsun eftir lesturinn að það væri gúrkutíð .. er þetta kannski nýjasta trendið í fréttum...
"Ung stúlka var flutt á sjúkrahús eftir að hafa fundið til eymsla í hægri ökkla.  Við nánari skoðun kom í ljós að hún var tognuð.  Stúlkan fékk að fara heim eftir skoðun og borgun"
.. það sem ég þurfti nákvæmlega að vita... *sagtmeðkaldhæðni*...
Hvernig er hægt að velta sér upp úr svona málum... þarf heimurinn virkilega að vita hvernig hún Elín komst að þessu..  það eina sem ég spyr mig eftir þessa frétt er hvers vegna Tígri þarf á svefnlyfjum að halda, afhverju kemur það ekki fram .. kannski ég sæki bara um hjá Daily Beast !!!
... þú ert pottþétt alkóhólisti !!!
Mér finnst einfaldlega að reglur um áfengi ættu þá að vera þær sömu og um reykingarnar.
#Engar þá meina ég engar auglýsingar um áfengi (heldur ekki léttbjór) !!
#Hvort sjáum við fleiri auglýsingar um áfengi eða sígarettur ??
#Aldrei aftur ölvaður maður eða með áfengi í hönd í ísl. bíómyndum já eða í ísl. sjónvarpsefni.   Engar dulbúnar auglýsingar um áfengi í matreiðsluþáttum sem framleiddir eru..
#Hætt verði sölu á áfengi í sjoppum.  Áfengi er selt í sjoppum úti á landi.  Ég hef oftar en einu sinni farið í sjoppu á Dalvík og fengið mér hamborgara og bjór.
# Vernda á þá líka þá starfsmenn sem starfa á veitingahúsum og börum eða annarsstaðar þar sem áfengi er haft um hönd.
# Verð á áfengi verði það hátt að það komi til með að dekka allan kostnað ríkisins vegna fólks sem á við áfengisvandamál að stríða..
#Áfengi verði skilgreint sem ávana- og fíkniefni
#Ölvaðir þingmenn í þingsal verði umsvifalaust reknir úr starfi.
#Íslenska ríkið komi ekki til með að dekka neinn áfengiskostnað... það verði einfaldlega bara boðið upp á Epladjús í opinberum heimsóknum o.þ.h.
Og að lokum að börn fái ekki að fara með foreldrum sínum í áfengisverslanir.
... var að klára bókina "Baráttan fyrir börnin, reynslusaga móður af einhverfu", eftir Kareni Kristínu Ralston.   Þessi bók er bara yndisleg, ég las hana á 2 kvöldum en á eftir að lesa hana aftur og þá á aðeins hægari lestri.
Það er alveg ótrúleg upplifun að lesa bók og upplifa sjálfa sig á hverri blaðsíðu.  Ekki ósvipað og þegar ég las snilldar bókina "Sá einhverfi og við hin" eftir  Jónu Gísladóttur.  Ég á stundum mjög erfitt að lesa svona bækur, á það til að upplifa sorg og minningarnar flæða fram.  Stundum falla tár.  Einhvernvegina þá sé ég samt hlutina mun skýrar og get útskýrt fyrir sjálfri mér að drengurinn minn var/er svona afþví að hann er einhverfur, ekki að því að ég var svona misheppnuð.
Hann á 2 systur sem í dag eru Eyrúnu Töru 8 ára  og Brynju 15 ára.  Brynja hefur lítið náð til Sigga Tuma en annað mál er með Eyrúnu Töru, þau eru miklir vinir.   Fyrir um einu og hálfu ári síðan,  vil ég segja að Siggi Tumi hafi uppgvötað að Brynja væri hluti af fjölskyldunni, hann talaði aldrei við hana af fyrra bragði og einfaldlega hunsaði hana oft á tíðum.  Einn daginn eftir leikskóla þá kom hann inn og sagði í dyrunum "hvar er Brynja".  Ég missti einfaldlega andlitið.... hann var að spyrja um systur sína af fyrra bragði og vildi vita hvar hún væri.  Hann var að fatta það að Brynja ætti heima hjá okkur og væri hluti af fjölskyldunni, 3ja ára gamall.
Í bókinni hennar Karenar er mikið talað um mataræði og hvernig það hefur breytt drengjunum hennar, mjög áhugavert og kannski eitthvað sem ég ætti að skoða betur.  Held samt að ég gæti þetta aldrei og  ber mikla virðingu fyrir þessari konu fyrir staðfestu og ákveðni hvað varðar leikskóla og skólagöngu drengja hennar, ótrúleg barátta sem þessi kona hélt út.
Annars er það helst að frétta af þessu heimili að Eyrún Tara mín er 8 ára í dag, búið að vera afmælisveisla fyrir bekkinn hennar og afþví að ég er svo hræðilega leiðinleg og löt þá sleppum við æfmælisveislu fyrir fjölskylduna og vini og förum bara í Vín í ís og svo út að borða í kvöld. Ef ég á að vera hreinskilin þá er ég ekki að höndla afmælisveislur þegar Sigurður Tumi er heima.
Skólinn hjá mér er kominn á fullt, sé fram á mjög skemmtilega önn með frábærum kennurum og skemmtilegum samnemendum.   Sem sagt allt í rútínu sem þýðir að lífið gengur barasta bærilega !!!
Ég hef alveg staðið í þessum sporum, vera staublönk einstæð móðir og eiga ekki pening fyrir skólabókum.  Ég mætti þó í skólann á tilsettum degi, verslaði mér ljósritunarkort og til að byrja með þá ljósritaði ég það sem ég þurfti á að halda, og lærði svo á bókasafninu þar sem ég gat fengið bækurnar að láni !!!
Vantar alveg sjálfsbjargarviðleitnina í fólkið í landinu !!!
Stundum finnst mér heimurinn vera orðin svo furðulegur.. eða er það kannski ég.  Þarf að veita unglingum í dag áfallahjálp ef þeir komast ekki inn í þá skóla sem þeir vilja !!!
Hvernig verður þetta þá í framtíðinni..  koma þessir krakkar þá til með að vilja áfallahjálp þegar eitthvað gengur ekki upp í lífinu, t.d. fá ekki þá vinnu sem þeir sóttu um.
Þvílíkt og annað eins rugl !!!!
Maður ætti kannski að fara að mennta sig sem áfallahjálpara.. verður nóg að gera í framtíðinni með þessu áframhaldi...
"Húsið í happdrættisvommomg"
Ég er daglega að sjá  villur bæði stafsetningavillur og málvillur hér á mbl.is og svo ekki sé minnst á visir.is.
Þetta verkefni gerði ég í Eigindlegum rannsóknaraðferðum fyrr í vetur í Háskólanum.  Við áttum að skrifa minningarkort og teikna mynd um einhverja minningu sem við eigum.  Ég fékk 10 í einkun fyrir þetta verkefni og frábæra umsögn og var mjög sátt !!
Reykjavík 1979.
Vesturbærinn í Reykjavík árið 1979.  Það er haust, laufin eru að falla af trjánum og skólinn er nýbyrjaður.  Ég var að byrja í 6 ára bekk í Vesturbæjarskóla, nýkomin heim úr Bárðardalnum þar sem ég eyddi sumrinu, brún og útitekin, mamma segir að ég hafi stækkað heilmikið um sumarið.
Pabbi er að búa sig undir að fara í vinnuna, hann klæðir sig í betri fötin og setur á sig Old Spice.  Eins og svo oft áður á ég að fara með honum í vinnuna, mamma vann á Kleppspítalanum og var mikið á kvöldvöktum og þá fór ég með pabba í vinnuna.
Við leiðumst niður tröppurnar  á húsinu okkar í Ránargötu númer 33 og svo röltum við af stað niður Ránargötuna, húsin standa þétt að hvert öðru, stór tré, krakkar í leik, skrýtin matarlykt berst til okkar frá eldhúsgluggum.  Við syngjum “My Bonnie is over the ocean, my Bonnie is over the sea” , tökum nokkur valhopp og pössum okkur á því að stíga ekki á strik.
Hann kann svo mörg lög, hann var í frægum hljómsveitum í mörg ár áður en ég fæddist, eins og Lúdó sextett og Stefán,  City sextett,  hann spilaði með frægum söngkonum eins og Ellý Vilhjálms og Erlu Þorsteins.
Á Lækjartorgi kaupum við okkur pylsu, ég vil pylsu bara með tómatsósu, uppi og niðri.  Frá Lækjartorgi er stefnan tekin upp Hverfisgötuna þar sem Þjóðleikhúsið stendur, þar vinnur pabbi.  Þetta stóra gráa hús ber yfir sér mikinn sjarma og mér finnst það vera stærsta hús í heimi.
Við förum ekki upp stóru tröppurnar upp um aðalinnganginn, heldur förum við niður í Þjóðleikhússkjallarann, göngum niður lítinn brattan stiga og endum í eldhúsinu.  Þar er mikið um að vera, kokkar og þjónar á fullu og í litlu herbergi inn af eldhúsinu sitja leikararnir Árni Tryggvason, Bessi Bjarnason, Sigríður Þorvaldsdóttir, Erlingur Gíslason og fleiri.  Mig minnir að það hafi verið að sýna leikverkið Stundarfriður eftir Guðmund Steinsson, undir leikstjórn Stefáns Baldurssonar leikhússtjóra.  Hann Stefán gaf mér alltaf kanel tyggjó þegar við mættumst á göngunum.  Mér fannst það ekkert sérstaklega gott, en það var svo góð lykt af því.
Pabbi sest við svarta gljándi flygilinn í matsalnum, ég sest við hliðina á honum og hann byrjar að spila.  Hann er tónlistarmaður og  spilar fyrir matargesti Þjóðleikhússins.
Ég sit alveg kyrr og passa mig að tala ekkert við hann.  Ég nýt þess að hlusta á tónlistina og stundum get ég ekki staðist það að syngja aðeins með.  Þá brosir pabbi til mín og spilar aðeins hærra svo ég trufli nú ekki borðhaldið hjá prúðbúna fólkinu.
Konurnar eru  í fallegum kjólum og karlmennirnir í jakkafötum með bindi eða slaufu.  Ég fer og næ í kaffi handa pabba, svart kaffi í stórri könnu með mörgum skeiðum af sykri út í .  Ég sest inn í litla herbergið innan af eldhúsinu og leikararnir fara að spjalla við mig og ég borða besta ís í heimi.
Oft sit ég undir píanóinu og nýt þess að hlusta á tónlistina.   Lög eins og Litla flugan, Anna í Hlíð, Ljúfa Anna, Við gengum tvö og Hvítir mávar hljóma inn á milli þekktra og vinsælla laga með Ellu Fitzgerald, Nat King Cole, Louis Armstrong og Oscars Petersons og fleiri snillinga.
Þegar ég  sit undir píanóinu finnst mér tónlistin verða allt öðruvísi, hún hljómar ekki eins og ég  finn hvern einasta takt, hvern einasta tón og hljóm í hjartanu mínu. Tónlistin fyllir mig gleði og það er eins og pabbi sé að spila bara fyrir mig.  Mér líður vel og ég held að ég sé hamingjusamasta 6 ára stelpan á landinu.  Allt pabba að þakka, hann spilar svo fallega á píanóið, hann er besti pabbinn í öllum heiminum og ég elska hann svo mikið.
Mér finnst tíminn fljótur að líða og nú er pabbi búin að spila og matargestirnir fara í leikhúsið á efri hæðinni.  Við förum inn í eldhús og hann fær sér meira kaffi en ég bryð ísklaka sem ég fæ út stórri kistu, fullri af ísmolum.  Svo leiðumst við heim á leið, við syngjum og valhoppum og pössum okkur að stíga ekki á strik.
Dalvík 2005
Það er enn og aftur komið haust og laufin farin að falla af trjánum, haustlitirnir eru svo fallegir.   Ég er að gefa litla drengnum mínum  honum Sigurði Tuma að borða.   Hann heitir Sigurður í höfuðið á pabba mínum, besta pabba í heimi.
Litli drengurinn minn er búin að vera veikur, hann er mjög oft veikur þessi litli snáði.  Hann fæddist 6 vikum fyrir tímann og var vart hugað líf.  En hann spjaraði sig litli kúturinn, augasteinninn hans afa síns.
Ég er að bíða eftir að elsta dóttir mín komi heim úr skólanum til að hún geti náð í yngri systir sína í leikskólann fyrir mig.
Hugurinn reikar upp á sjúkrahús til pabba sem er í aðgerð.  Ég er nýbúin að tala við mömmu í símann en hún hafði ekkert frétt, þegar síminn minn hringir, það er læknirinn. “ Sif mín, við getum ekkert gert meira fyrir hann pabba þinn, æxlið hefur stækkað svo mikið,  það er orðið svo stórt að það er komið á stærð við mannshöfuð.  Mér þykir það leitt, en hann er að deyja, við gefum honum í mesta lagi 3 vikur”.
Ég frýs, ég get ekki einu sinni grátið, ég bara titra og 1000 hugsanir og spurningar fljúga í gegnum huga minn;  Hvernig á ég að komast í gegnum þetta, hvernig á ég að komast í gegnum lífið ef pabbi er ekki við hlið mér, kletturinn í mínu lífi, stoð mín og stytta.   Ekki pabbi minn, ekki pabbi minn, hvað er Guð eiginlega að hugsa ?.  Hvað verður um mömmu ?, Afhverju er lífið svona ósanngjarnt ?.
Tilfinningin er reiði, ég er reið við læknana, ég er reið við Guð og ég er reið við pabba, hann skal ekki voga sér að deyja frá mér.  Ég titra á meðan ég keyri inn á Akureyri.  Ég held að ég hugsi ekki einu sinni, ég er bara tilfinningalega frosin.
Ég geng inn á gjörgæsluna og á stofu númer 2,  stofuna þar sem hann liggur, elsku besti pabbi minn, en ég græt ekki, ég er reið.  Hann spyr mig hvort ég hafi fengið símhringinu frá lækninum.  Ég jánka því, þá segir hann við mig;    "Fyrigefðu mér elsku Sif mín, þú verður að vera sterk, þú verður að vera sterk fyrir mömmu þína og systir þína, ég veit að þú getur það”.
Í 10 daga vaki ég og sef á sjúkrahúsinu hjá honum, þetta eru erfiðir 10 dagar því hann þjáist mjög mikið.  Hvíldina fær hann loksins þegar ég hvísla að honum;  “Þetta er allt í lagi pabbi minn, þú mátt deyja, ég spjara mig ég lofa því,  ég er ekki lengur reið”.
Hann tekur síðasta andardráttinn og tárin fara að renna hjá mér og mér finnst eins og hjartað mitt tæmist þarna í fyrsta skiptið sem ég græt, eftir að ég fékk þetta örlagaríka símtal.
En ég er ekki lengur reið.
Skrifað í minningu föður míns
Sigurðar Þóris Þórarinssonar, hljóðfæraleikara og vaktmanns í 17 ár á geðdeild FSA.
Fæddur 16. janúar 1944,  en lést á FSA  þann 27. september 2005.
Minning þín lifir í hjarta mínu.
Stór hluti af mér, fór með þér.
Draugadrjóli : Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.
Hreinn skítur : Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á
skeinipappírnum.
Eltikúkur : Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.
Sprengir æð í enninu hnulli : Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag
Dauðadrumbur : Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.
Loftpressukúkur : Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.
Þynnkuskita : Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni.
Maískúkur : Skýrir sig sjálfur.
Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur : Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.
Mænustunguskítur : Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.
Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.
Fljótandi drulla : Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og rassgatið á þér með.
Háklassakúkur : Kúkur sem lyktar ekki.
Óvæntur kúkur : Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð.
Slórskítur : Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.
Atómsprengja : Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir.
Skopparakúkur : Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kostur þarf lítið að skeina)
Mikilmennskukúkur : þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð.
Íþróttaálfurinn : kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina.
Klippikúkur : sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa...
hmmm... mér sýnist veðrið vera að skána....