Þetta finnst mér alltaf jafn ferlega fyndið... aulahúmor.is

Draugadrjóli : Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.

Hreinn skítur : Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum.

Eltikúkur : Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.

Sprengir æð í enninu hnulli : Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag .

Dauðadrumbur : Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.

Loftpressukúkur : Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.

Þynnkuskita : Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni.

Maískúkur : Skýrir sig sjálfur.

Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur : Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.

Mænustunguskítur : Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.

Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.

Fljótandi drulla : Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og rassgatið á þér með.

Háklassakúkur : Kúkur sem lyktar ekki.

Óvæntur kúkur : Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð.

Slórskítur : Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.

Atómsprengja : Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir.

Skopparakúkur : Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kostur þarf lítið að skeina)

Mikilmennskukúkur : þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð.

Íþróttaálfurinn : kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina.

Klippikúkur : sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa...

toilet1.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var ekki áreynslulaust að lesa þetta.....Ætli höfundurinn sé Pétur í óháða söfnuðinum?

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband